Erlent

Tyrkir stöðva öll við­skipti við Ísrael

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Erdogan Tyrklandsforseti. Frá og með gærdeginum eru öll viðskipti stopp á milli Ísraels og Tyrklands.
Erdogan Tyrklandsforseti. Frá og með gærdeginum eru öll viðskipti stopp á milli Ísraels og Tyrklands. Ahmad Al-Rubaye/Pool Photo via AP

Tyrkir hafa ákveðið að hætta öllum viðskiptum við Ísrael vegna innrásar þeirra á Gasa svæðið.

Ákvörðunin er tekin nú í ljósi þess að aðstæður fólksins sem þar búa fari versnandi með hverjum deginum sem líður, að sögn yfirvalda. Tyrkneska viðskiptaráðuneytið segir að öll viðskipti milli landanna tveggja verði fryst uns Ísraelar leyfa óhindrað flæði hjálpargagna inn á Gasa.

Viðskipti landanna tveggja námu sjö milljörðum Bandaríkjadala á síðasta ári eða um þúsund milljörðum í íslenskum krónum talið. Ísraelar hafa þegar brugðist hart við og var Erdogan Tyrkjaforseti meðal annars sagður haga sér eins og einræðisherra af utanríkisráðherra Ísraels.

Tyrkland var fyrsta múslimalandið sem viðurkenndi tilvist Ísraelsríkis árið 1949 en samskipti ríkjanna hafa farið versnandi síðustu ár og áratugi. Í janúar sagði Erdogan að innrás Ísraela á Gasa væri ekkert skárri en það sem Hitler gerði á sínum tíma. Netanjahú forsætisráðherra svaraði því til að Erdogan, sem fremji þjóðarmorð á Kúrdum og fangelsaði gagnrýna blaðamenn væri síðasti maðurinn í heiminum sem gæti kennt Ísraelum siðferði.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×